24.12.2008 | 10:26
Runnin upp nýr dagur...........
Jæja þá er runnin upp nýr dagur og dagurinn er aðfangadagur, og vitið þið hvað, mér finnst það gott, mér líður 1000* sinnum betur en í gær. í raun líður mér bara mjög vel núna ég náði að sofa til klukkan hálf 9 og það hefur ekki gerst í rosalega langan tíma og það var mjög kærkomið og vel þeygið. Svo að dagurinn í dag verður góður og ég hlakka til að fara í gegnum dagin með fólkinu mínu öllu á báðum heimilum. Dótlan mín kom í gær aftur heim frá Akranesi og var yndislegt kyssa hana og knúsa nú í morgun. Skrítið hvað sveiflurnar hja mer eru djúpar, annað hvort er allt algjörlega svart eða þá súper gott það þarf að stilla þetta eitthvað, en ég vissi samt í gær að þetta myndi líða hjá en er bara afskaplega vont meðan á því stendur og hreint óþolandi fyrir fólkið í kringum mig, þó það kvarti nú ekki beint við mig. en jæja ég óska öllum á blogg heiminum
GLEÐILEGRA JÓLA OG FARSÆLDAR Á NÝJU
ARI.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Sigríður Svala Hjaltadóttir
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 904
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ljúfa jóladaga til þín.
Aprílrós, 26.12.2008 kl. 22:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.