31.3.2008 | 06:23
Skap sveflur!!!!!!!
Jæja þessa dagana sveiflas skapið til og frá hjá mér, veit eiginlega ekki hvað er í gangi. sko ég veit þetta tengist því að ég er að hætta að reykja (í dag er dagur nr 3 sem ég er reyklaus) og hætt að drekka coke. smá fráhvörf og sollis, ég meina ég er búin að reykja c.a. einn pakka (stundum meir og stundum minna) á dag í 12 ár og það er langur tími til að venja sig á ekkað. Í gær eyddi ég deiginum í leik í tölvunni sem heitir cradel of rome, voða gaman. En í stað þess að missa mig og segja ekkað sem ég myndi sjá eftir við fólkið mitt að þá hef ég bara þagað en þau hafa samt náð því að láta mig þá bara vera og vera ekkert að pumpa mig, enda hefur það lítin tilgang. þetta mun verða auðveldara og auðvelda með hverjum deigi eða það vona ég allavega. En varðandi flensuna að þá er hitin farin, röddin komin og heila starfsemin að fara í gang. Bara smávægilegur hósti eftir. við honum hef ég 2 púst svo ég þarf ekki að láta hann ergja mig. Nú ætla ég að fara að heimsækja fólk á næstunni fyrst mér er að batna. ég hef ekkert farið og ekkert gert í soldin tíma, svo það er tími til komin.
Jæja ætla að fara í leikin þar til að einhver fer á fætur til að spjalla við mig. kv ég
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.3.2008 | 16:53
Bla bla bla...
jæja ég loksins kom mér fyrir framann tölvuna, til að blogga. Ég var of slöpp í gær til að blogga. Hann hringdi loks í gær lugnasérfræðingurinn og bannaði mér að taka inn meira pensilín ætti frekar að vera duglegri að nota pústin mín. svo það er það sem ég ætla að gera. Ég hef ekkert reykt í dag og finnst það góður árangur miðað við mig. sko ég ætla bara ekki að reykja í dag, það er nógu langt að hugsa það núna. Og ég hef heldur ekki drukkið coke í 2 daga sem er einstakt þar sem að ég hef drukkið 4-6 lítra á dag í langan tíma. svo nú er það bara vatnið. Ég er búin að vera furðulega skap góð miðað við allt. Ég hef ákveðið að veita sjálfri mér einhver verðlaun ná í ég að vera 1 mánuð án alls óþarfa vitleysu. Ég var að lesa fréttablaðið í morgun og mér brá frekar mikið ég var að fletta blaðinu og rakst þar á dánartilkynningar og þar var ein af kunningja mínu, sem var með mér í meðferð í sumar, Þetta var soldið áfall, maður á besta aldri og það sem meira var að hann var uppáhald ráðgjafanna og átti víst að vera líklegastur til að ná bata frá alkahólisma. en raunin var sú að hann féll afar fljótt eftir að meðferð lauk og er nú allur búinn. Sorglegt.
Takk fyrir að hafa fengið að kynnast þér , vinur. Ég bið Guð og englanna að gæta þín.
Góða nótt nú og að eylífu. kv. Ég.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2008 | 15:23
hæ hó
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.3.2008 | 10:25
hálsbólga rosa gaman
jæja mér versnar bara með deigi hverjum af þessari flensu, enda ætla ég að hringja í heimilislækninn á eftir, það hlítur að vera ekkað til við þessum andskota (afsakið orðbragðið), það versta er að ég næ svo lítið að sofa. jæja ég hef ekki orku í að skrifa meira í aygnablikinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.3.2008 | 05:13
Svefn?
Mikið gæfi ég fyrir að ég gæti sofið, Mér hefur ekki tekist að sofa mikið í nótt, útaf verkjum við það að anda, hósta og særindum í hálsinum, Mér finnst þetta bara ekkert skemtilegt. Í fyrradag æddi ég upp á sjúkrahúst til að hitta vaktlækni, þar mátti ég bíða í einn klukkutíma og fjörutíuog fmm mínútur, bara til að komast að því að þetta væri bara inflúensan og ekkert við henni að gera. Svo í gær æddi ég aftur upp á sjúkrahús til að hitta vaktlækni, en í þetta skiptið var ég að fara með stelpuna mína, við fengum að bíða í 2tíma þarna uppfrá í það skiptið og bara til að fá að heyra það sama, Ég ætla ekki að fara þangað í dag aftur, ekki séns. En hvort ég sé sammála því að þetta sé bara influensan, það er ég ekki, Ætla bara að tala við minn heimilislækni á þriðjudaginn hann þekki mig best og er afar góður læknir.
Ég og dóttir mín vorum ekki í miklu páskaskapi í gær, samt er hún vaknaði þá sagði ég henni að fara að leita af páskaeggjunum sínum, hún var ekki lengi að finna þau, en það eina sem hún vildi með þau var að taka strumpana ofan af þeim. hún snerti varla súkkulaðið eða nammið, enginn áhugi fyrir því og guð hvað ég skildi hana vel, mér hefur ekkert langað í neit síðan að ég varð lasin. Ég átti sjálf eitt páskaegg og fengu hinir á heimilinu bara að njóta þess. enda vantar mig ekki beint hitaeiningar, er allt og þung.
Nú er stelpan mín að fara suður í dag með systur minni í x langan tíma. Mér langar helsti til að hætta við að leyfa henni að fara, en get það samt varla ég var búin að lofa henni því og það er víst ljótt að svíkja loforð. Svo held ég líka að systir mín yrði brjáluð ef ég segði nei því hún er frekar mikið hrifin af stelpunni líkt og öllu börnum, Svo ég verð bara að loka munninum og segja ekki orð.
heyrumst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.3.2008 | 01:32
I´m sick
blessuð öll sömul, nú hef ég ekki bloggað í nokkra daga, eða allt svo frá því á miðvikudag hled ég. sko ástæðan fyrir því er sú að stóra systir mín kom norður og hennar talfa verður að vera í sambandi og mömmu talfa og örnu talfa, þannig að mín má ekki vera í notkun meðan að þau eru hérna, ég ákvað samt áðan að taka mér það bessa leyfi að plugga mína tölvu í samband og blogga. Enda gerir það voðalítið til þar sem að þau gistu ekki hér í nott.
Sko ég hef haft nóg að gera hérna heima síðustu daga, og er það bara ágætt en ég held að núna verði ég til lítis gagns, Því í gær vaknaði ég með þessa fínu hálsbólgu og hita, og er hún bara frekar slæm, ég held að hálsbólgan sé valdurinn af því að ég get eingan veigin sofið núna, svo erfitt að liggja útaf og anda. Það er gaman að þessu öllu saman. En það er hreint út sagt lygilegt hvað ég er oft lasin og veik, er ekki allveg að verða komið nóg? Mér finnst það.
Jæja mamma er að hressast eftir aðgerðina, reyndar fór hún á sjúkrahúsið í fyrradag því blóðþrýstingurinn var ekkað að stríða henni, þá var henni skipað að hætta á blóðþrýstings lyfjunum og var hún strax skárri í gær, sem er gott, Ég verð að segja eitt um þennan lýtalækni og það er að hann er djöf... fær í sínu starfi...
Ég óska ykkur gleðilegra páska. við heyrumst kv. einfarinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.3.2008 | 08:00
Hva eru ekki allir vaknaðir
Ég vaknaði rétt fyrir kl hálf 6 í morgun, rosa mikið stuð, eða ekki, Stelpan vaknaði kvartandi og kveinandi bara illt allstaðar greyinu, svo ég ákvað að mæla hana og reindist hún vera með 39,5 stiga hita. þannig að hún var bara með svona mikla beinverki engillinn. Við fórum svo bara framm og ég fann ekkað handa henni að borða og drekka, svo skellti ég mér í þvotta húsið og er nú að baka maregns fyrir mömmu, Svo ég er bara aktív í morgun sárið, Voða gott svo þegar ég er búin að vesenast að þá ætla ég að fara í heita og góða sturtu og bera á mig ekkað gott krem með góðri lykt.
Hey ég var búin að gleyma að segja ykkur að ég er búin að snoða mig, fólk tekur því svona misjafnlega vel, mér finnst það fara mér ágætlega en jæja allir verða að fá að hafa sína skoðun á þessu, þetta var það eina sem mér datt í hug að gera við hárið á mér, sko ekki á ég pening til að fara í klippingu og litun og allt það vesen, og hárið á mér var komið í leiðinlega sídd þannig að bara af með það allt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.3.2008 | 17:50
Að fara til augnlæknis
Jæja ég fór með stelpuna til augnlæknis í dag rétt fyrir kl 2 og það tók einn og hálfan klukku tíma. Stelpan var ekki mikið hrifin af þessu og var bara hreint fúl við mömmu sína fyrir þetta, fyrst var hún svo feimin að hún gat varla litið á konuna, svo þegar hún var rétt að fara að þíðast hana að þá setti konan einhverja dropa i augun á henni og við það sturlaðist stelpan, og álit hennar á greyið konunii fór allveg. jæja svo var það að tala við augnlækninn sjáfan og ekki var það betra, troða einhverju ljósi í augun á henni, hún var allveg orðin geðveik í skapinu. jæja það kom útúr þessu að stelpan þarf gleraugu til að ganga með allan daginn. voða gaman. hún er svona skemmtilega fjarsýn einsog mamman og tölurverð sjónskekkja. en þá er bara að splæsa í gleraugu, hún verður að sjá stelpan. en droparnir sem settir voru í augun á henni eru að virka í 2-3 kl eftir að hafa verið settir í augun. og er virknin þannið að þetta þenur út augasteinana sem veldur því að barnið sér nánast ekkert sem er nálæg henni og ljós og birta fer í hana. og það hefur það i för með sér að hún er rosalega skap góð eða þannig. Ég er núna að búa til kvöldmatinn og baka einhverjar brauð bollur. svona á milli ferða í þvotta húsið. er að spá í að nota morgun daginn í að baka marengs fyrir mömmu. og skúra gólfin og taka til. Rosa gaman hjá mér.
heyrumst
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.3.2008 | 12:36
Dagin í dag, Dagin í dag......
jæja vaknaði hress í morgun kl 06:40 með dóttur minni.Svo fór ég með hana í leikskólan í morgun, þaðan brunaði ég til læknis í hefbundið eftir lit. það kom í ljós þar að ég þarf að fara í röntgen mynd með hnéið á mér og sneiðmynd, hann grunar að það sé ekkað slitið þarna, allavega er ekkað að jú þetta er nú einu sinni ég,, GÖLLUÐ vara. Svo er ég búin að baka 3 kökur í dag, 2 fyrir paba og 1 fyirr heimilið hérna. Stóra systir mín og mágur eru að koma á morgun og hlaka ég til þess. Mamma fór í brjósta aðgerðina í gær og er að reyna að jafna sig á þessari stóru aðgerð, það mun að sjálfsöðu taka töluverðan tíma fyrir hana að jafna sig á þessu. Þannig að nú er ég komin með nafnbót Svala húsmóðir. flott ekki satt. Það er eitt við þetta ég á erfiðara með að halda mömmu góðri heldur en stelpunni, hún bara vill stundum ekki skilja það að hún á að liggja fyrir og hafa það gott, hún má ekkert gera ekki einu sinni vera við tölfu. Jæja ég þarf að fara að fara út, er að fara með stelpuna til augnlæknis og þaðan með hana í klippingu. nóg að gera og það er mjög gott fyrir mig, þá næ ég ekki að sökkva mér í mínar eigin hugsanir og vitleysu.
Ferð ég þó að passa mig að fara ekki framm úr sjálfri mér og liggja bakk í rúminu. ég verð líka að passa mig. ég er jú 100ára miðað við líkamann allavega. Ég er svo sem ekkert mjög gömul í anda.
kv.Ég
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2008 | 10:44
Mornig every one
pabba helginni lauk skyndilega í gær, ja það hlaut líka að gerast, ekki geta þau verið með hana heila helgi. En bara allt gott um það að segja, stelpan var bara þæg og góð og fór bara að sofa á sínum tíma og vaknaði kl hálf 7 í morgun. Mér tókst hins vegar ekki að sofa vel, bara nánast ekki neitt, var með einhvern verk í fingrinum. já ég er gölluð vara. Ef að einu líkur að þá tekur bara ekkað annað við. ég hef þá allavega ekkað til að kvarta yfir . En hann þykist ætla að koma núna um ellefu og taka hana ekkað út með sér, sjáum hvað það endist lengi, hef ekki mikla trú á þessu. Ég kanski næ þá að halla mér í hálf tíma eða svo.. Ætla svo að reyna að kíkja á uppáhlads frænda minn í dag, svo er planið víst kvöldmatur með pabba, pizza eða ekkað sollis. Ekki beint hollusta. Ég ætla samt að reyna að halda mér vakandi soldið lengi í kvöld, þarf nefnilega að fasta frá miðnætti á allan vökva og allt, útaf því að ég er að fara í segulómskoðun í fyrra málið kl 09:20. gegt gamgan
jæja heyrumst
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sigríður Svala Hjaltadóttir
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar