6.3.2008 | 17:39
tveir snillingar = einn hálviti
smá útskýring á þessum titli: Við mamma vorum rosalega skýrar á laugardaginn. sko við fórum á Glerártorg, sem var svo sem í lagi, nema það að mamma keypti þar ægilega fínt nuddtæki á 400kr í rúmfatalagernum, við vorum ægilega lukkulegar með þessi kaup og förum heim. svo biður mamma mig að setja batterí í fína nuddtækið okkar, ég geri það samviskulega, rétti henni það svo og bið hana að athuga hvort tau snéru ekki rétt, jú jú sagði hún, en tækið fer ekki í gang, við ákveðum að ég skuli nú fara með þetta og skila því. En við vorum ekkert stressaðar á þessu, Hjalti bróðir kemur svo í heimsókn á sunnudeiginum og við mamma sýnum honum nuddtækið og segjum honum að það virki ekki og hann meigi líta á það ef hann vilji, hann gerir það. Svo heyrist í honum, þið vitið að þetta er fótaraspur og svo er betra að batteríin snúi rétt og séu öll í. semsagt nuddtækið reyndist vera fótaraspur og það vantaði 1 batteri í. Mikið er ég feigin að ég var ekki búin að skila þessu.
Enn svona fara veikindin með mann.
þetta er ekki búið enn. mamma skreppur í apótek á mánudaginn og fær þar prufu að kremi sem á að virka á allan andsk. þar á meðal frunsur og sollis. það er frekar mikil lygt af þessu. svo okkur þatt í hug að bera það undir nefið á okkur (svona til að losa um hor og sollis) sem var ekki mjög gáfulegt get ég sagt, þar sem við vorum mjög aumar eftir nefrenslið og það orðið næstum að sári. það sem við höfðum uppúr þessu var sviði þá meina ég SVIÐI, líkt og það væri búið að kveikja í okkur, við hlupum upp til handa og fóta og rifum viskastykki kældum það og skelltum undir nefið. við erum algjör gáfnaljós.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.3.2008 | 08:43
Dagurinn í dag.
jæja jæja, loksin virðist sem kvefið og veikindin séu á undanhaldi alla vega eru við mamma mun skárri í dag en í gær, sem er mjög gott. Ég hef tekið ákvörðun um að hætta að ergja mig á öðru fólki, ég verð víst að taka fólki einsog það er get ekki breytt þeim. og svo er spurnig að þó mér tækist það yrði ég þá nokkuð ánægðari held kanski ekki. Ég meina það eru bara ekki allir jafn frábærir og ég þetta var djók bara svo það sé á hreinu. Í gær uppástóðu sumir að ég væri í alvöru það illa innrætt að ég væri að reyna að stjórna því hvernig dóttir mín upplyfir suma. Ég allmennt tala vel um fólk við alla og ég myndi ALDREI reyna að snú dóttir minni gegn sumum eða tala illa um suma við hana, ég er ekki þannig. Ég tel að öll þurfum við á báðum forledrum að halda. ég myndi þar af leiðandi ekki reyna að hafa áhrif á það hvernig hún upplifir föður sinn.
Einnig tel ég að börn þurfa rosalega mikið á hlýju og ást að halda og jákvæðri gagnrýni og hóli að halda. hverjum þykir ekki gaman að fá hrós. Ef mér er hrósað að þá fær það mig til að gera enn betur og eykur sjálfstraustið hjá mér.
Við erum öll ágæt á okkar eigin hátt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.3.2008 | 13:24
Grátur og gnýstan tanna
Jæja jæja. ég veit að ég ætlaði að skrifa í gær eða fyrradag, en ég er svo lasin að ég get vart hugsað hvað þá gert ekkað. bara svona til að sanna mál mitt, þá fór ég með stelpuna í leikskólan í morgun sem er ekkert nýtt en þaðan fór ég með bílin í smurningu þar horfðu menn á mig einsog geimveru eða dauðadrukkna sem ég held þeir hafi haldið allavega þegar að ég var rétt búin að keyra frá verkstæðinu þá var löggan komin fyrir aftan mig og elti mig alla leið heim. mér fannst þetta ekki sniðugt, Þannig að ég hef tekið ákvörðun með það að vera ekki á ferðinni fyr en mér batnar smá. Stelpan mín fer til pabba síns í dag, eftir mikið tuð og þras. Aldrei eru þau þarna heima hjá honum tilbúin að vera með stelpuna þó við mamma liggjum báðar og ég hafi engan annan til að leita til. en svo á ég að hlaupa um til handa og fóta fyrir þau. ég meina ef einhver af heimilinu þar er ekki heima eða með kvef að þá kemur ekki til greina að þau geti verið með hana, ég er orðin soldið mikið pirruð á þessu. Svo ef pabbi hennar ákveður að fara suður að þá passar hann að það lendi nú örugglega á pabba helgi. frábært, ég/við hérna heima eigum alltaf að hliðra til fyrir þeim en ef það er ekkað hjá mér/okkur að þá er það samt ekki hægt. Nema núna þetta skiptið ég veit ekki hvað það mun vara lengi þau skipta svo oft um skap. jæja hætta gremjunni. Venjulega reyni ég að leiða þetta hjá mér en þegar að ég er lasin verð ég kanski helst til of meir og viðkvæm. Ég meina ég myndi skilja þetta ef stelpan væri erfið eða óþekk en það er hún ekki. Það er ekki oft sem það kemur fyrir að ég geti ekki haft hana, en þegar að ég get vart hugsað og virka á fólk sem dauðadrukkin að þá er þetta soldið slæmt.
jæja það var gott að fá útrás. KV. ÉG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.3.2008 | 07:52
Bara að reyna að drepa tíman.
jæja. ég vaknaði í morgun um kl 05:30 eða þá gafst ég upp á því að liggja í ruminu, ég sem var að monta mig í gær við pabba að ég væri búin að ná að sofa í 2 nætur og það meira að segja án svefnlyfja. en í morgun var ein breyting, það var eingin til að fara á fætur með mér. því eingillinn minn (Hanna lára) er hjá pabba sínum. seinustu viku höfðu við það mæðgurnar bara næs heima því hún er búin að vera veik og ekki getað farið í leikskólan. Fólk hefur spurt mig hvort það sé ekki erfitt að fara á fætur svona snemma á morgnanna með henni ( hún er vöknuð svona á milli 4-6 á morgnanna) En ég svara því hiklaust netandi, því hún er svo þæg og góð ekkert fyrir henni að hafa þannig séð. húin er ekki fiktin eða fyrir það að skemma hluti. Svo er hún ofsalega góð í því að dunda sér, Hún er bara lang best. svo er hún líka svo skýr. Ég veit ekki um mörg önnur 4ra ára börn sem eru svona góð. en auðvitað getur hún orðið soldið snúin stundum því hún er með mikið skap og veit hvað hún vill. (frek semsagt á köflum) Ég veit, ég veit hverjum þykir sinn fugl fegurstur.
Spurning hvernig dagurinn verður, ætli ég taki því ekki bara rólega í dag, enda sár lasin (kvefuð öllu heldur) bara hreint eins og drusla, afsakið orðabragðið.
jæja ætla að reyna að blogga í kvöld aftur ef ekii þá á morgun.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.2.2008 | 06:27
Það að seigja Fyrirgefðu er bara ekki alltaf nóg.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.2.2008 | 05:29
um. lífið er skrítið og fólkið enþá flóknara
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sigríður Svala Hjaltadóttir
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar