Færsluflokkur: Bloggar

Akranes.

jæja Ég var komin á Akranes um hádeigi í gær, og lá mér svo á að komast út úr bílnum til að knúsa dóttir mína að ég var nærri komin út á ferð. og voru þetta mikilir fagnaðar fundir, hjarta mitt tók kipp þegar að ég sá þetta fallega barn koma brosandi á móti mér, Guð hvað ég elska hana mikið, dagurinn var líka þannig að ég mátti ekki líta af henni, því var að sannfærast um að ég væri ekki að fara aftur frá henni, þannig að það var heppilegt að ég var hætt að reykja og þurfti ekki að vera að eyða tíma í það að fara út að reykja. svo kom hjá henni : mamma það núna góð lykt af þér. yndislegt hvað börn eru hreinskilinn, henni fannst ekkert að því að segja mér að ég hafi verið illa lyktandi áður. Ég var búin að vera frá henni í mánuð núna og er ég sá hana í gær fannst mér ég hafa misst af svo miklu, fannst hún vera farin að tala öðruvísi (fullorðinslegra) og bara breytt. Svo var náttúrulega breyting hjá henni, ég fór með hana til augnlæknis heima áður en hún fór og sendi ég systir mína með bréfið upp á gleraugu handa henni. og var hún auðvitað komin með þau þegar að ég kom í gær, og vá hvað hún er sæt með þau, en það sem mestu máli skiptir er að hún er ánægð með þau. Svo í gær var ég bara sambandslaus við umheiminn það eina sem komst að var  hún. ég svaraði ekki einu sinni í síman eða neitt. Í dag ætla ég að fara út að ganga með hana og á leikvöll og ekkað, hafa bara skemtilegan dag, bara við mæðgurnar, þetta má samt ekki fara út í öfgar, ég á það til að verða heltekin af henni og ekkert komist að fyrir utan hana, finnst aðrir vera fyri mér og við séum/ættum að vera einu manneskjurnar í heiminum. sem er kanski soldið bilað. en nóg með það..

Ég reyndar fékk áfall í gær þegar að ég sá systir mína (þessa sem er að fara að gifta sig). hún var búin að vera að leggja af, svo var hún orðin brún af ljósum og með gerfineglur. svo ætlar hún að vera máluð í brúðkaupinu. ég er að segja ykkur það að það er kraftaverk, hún málar sig ALDREI eða fer í kjól eða gerir ekkað stelpulegt, það er bara einhvernveigin ekki hún. Ekki miskilja mig mér finnst hún samt yndisleg, þetta er bara svo ólíkt henni, ég hef sennilega bara fengið snyrtigenin fyrir okkur báðar því helst vildi ég alltaf vera máluð í fínum fötum (kjólum og sollis). og er eina af okkur 4 systronum sem er þannig, auðvita er mér búið samt að takast að koma því inn hjá dömunni minni (nei  hún fæddist reyndar þanni), henni finnst líka voða gaman að vera í kjólum og með naglalakk og sollis hún er ofboðslega pjöttuð, sér bletti í fötonum sínum sem engin annar sér, en samt er það möst að skipta um fót. hún er algjör perla. bla bla bla bla bal nú er ég hætt að bögga ykkur með þesu bulli í mér. ble 


Gleði tóm Hamingja réttara sagt.

Dagurinn í dag verður yndislegur, Ég er að fara Til Akranesar í dag til Stelpunnar minnar og einnig til að sjá systir mína gifta sig á sunnudaginn. svo förum við mæðgur norður aftur. VÁ hvað ég er búin að sakna hennar mikið. enda er hún búin að vera í mánuð hjá systur minni af því að ég er búin að vera veik og Mamma var í aðgerðinni sem ég var búin að nefna fyrr. sko hausin á mér hefur verið að snúast um það hvað aðrir hljóti að líta á mig sem hræðilega móðir af því ég sendi hana svona lengi í burtu frá mér, en ég held samt að eingin líti á það líkt og ég. sem gerir það að verkum að mig langar að koma með hugleðingu : ég hled að fordómar og annað því um líkt sé oftast sterkast hjá manni sjálfum, maður dæmi sjálfan sig mun verr en aðrir, aðrir eru kanski ekkert að spá í manni en maður sjálfur er allveg vissum að manneskjan sé að hugsa um mann og setja út á mann, sko hann/hún horfði á mig og svo kemur runann í hausnum á manni. og á endanum er maður orðin svo sár við þessa persónu að að maður getur ekki komið sómasamlega framm við hana.

T.d ef ég er í búð og stelst til að kaupa mér nammi að þá er ég vissum að allir séu að horfa á mig og hugsa: já auðvitað er feita stelpan að kaupa sér nammi, hvað annað ætti hún að kaupa, jú og sjáðu það' eru franskar,kokteilsósa og pizza líka. En ég held samt í rauninni að það sé ekki það sem fólk er að spá, heldur æji hún þyfti nú að breyta um mataræði eða ekkað svona smekklegt, eða að það spái nákvæmlega ekkert í mér.

 

Ég ætla að taka það framm að þetta var dæmi. ég er ekki alltaf að kaupa mér nammi, franskar,kokteilsóur og pizzu, mér datt þetta bara í hug sem hreina óhollustu.

 

            æji what ever. ég veit ekki hvort þið skiljið hvað ég er að fara, en ef þið náið því komiið þá endilega með comment.          til þess er leikurinn gerður. 


Dagurinn í dag.

Í dag ætla ég að láta deiginum nægja sína þjáningu go ekki taka ákvörðun lengra framm í tíman en næstu tólf stundir. Ég ætla ekki að reyna að brjóta til mergjar öll vandamál lífs míns.

Í dag ætla ég að vera ánægð(ur). Ég ætla að trúa því sem Abraham lincoln sagði : Flestir eru eins ánægðir og þeir einsetja ser að vera:

 Í dag ætla ég að leitast við að fá andlegan styrk. Ég ætla að læra eitthvað nytsamt. Ég ætla a ð lesa eitthvað sem krefst áreynslu,hugsunar og einbeitningar.

Í dag ætla ég að laga mig eftir aðstæunum en ekki reyna að breyta öllu í það horf sem  mig langar til sjálfa(n).

Í dag ætla ég að þjálfa mig á þrennan hátt. Ég ætla að gera einhverjum gott, án þess að nokkur viti. Ég ætla að gera eitthvað sem mér leiðist, aðeins til þjálfunar. Og ef tilfinningar mínar eru særðar, ætla ég ekki að láta á því bera.

 Í dag ætla ég að vera eins snyrtileg(ur) og mér er unnt,tala rólega og koma kurteislega framm. Gagnrýna engan. Reyna ekki að bæta eða aga nokkurn annan en sjáfan mig.

Í dag ætla ég að fara eftir áætlun. Líklega fylgi ég henni ekki nákvæmlega,en ég ætla að fara eftir henni í höfuðdráttum. Ég ætla að forðast tvo kvilla: hraða og ráðaleysi.

Í dag ætla ég að hafa hálfrar stundar ró, aðeins fyrir sjálfan mig, til hugleiðingar og hvíldar, þessa hvíldarstund ætla ég að öðlast betra yfirlit um líf mitt.

Í dag ætla ég að vera æðrulaus. Ég ætla ekki að vera hrædd(ur) við að njóta þess sem fagurt er og trú því , að veröldin gefur mér á sama hátt og ég henni.

Í dag ætla ég að reyna að temja mér auðmýkt hjartans og vera ekki hrædd(ur) við að viðurkenna breyskleika minn. 


Einkamál

Ég er búin að vera aðeins inn á einkamál og ég veit ekki hvað kynsytur mínar eru búnar að gera, en allavega virðist sem svo að þær séu búin að leyfa og gefa tilefni til að karlmenn komi framm við okkur sem druslur  sem eru með eingar tilfinningar bara gat, þeir virðast halda að þeir meigi seigja hvað sem er við okkur án  þess að við gerum neitt í því. ég er búin að vera að reyna að breyta þessu þarna inni en næ ekki miklum árangri ein því það eru hundruðir kvenna sem eru búin að koma þessum skilaboðum i ummheimin, Stelpur ekki gera ykkur að einhverju LEIKFANGI fyrir karlmenn og leyfa þeim að koma illa framm við ykkur og tala við ykkur sem druslur, við erum vonadi ekki svona. ég ætla að taka það framm að þetta á líka við um karlmenn, konur meiga heldur ekki koma svona framm við ykkur. flest okkar viljum eignast maka til frambúðar eða svo, og þá kemur gatið á konum ekkert málinu við, ekkert samband getur lifað eingöngu á því sem gerist í svefnherberginu í myrkri.

Það eru 90% allra sem senda mér póst á E-M sem eru eingöngu að leita að drætti, og þar skiptir víst eingu máli þó þeir eigi konur (þeir eru bara búinir að fá leið á þeim), hvað er að þar, svo halda þeir að maður hafi áhuga, fyrst þeir lítilsvirða konurnar sínar svona, hvað þá með hinar..

 

Í dag er í tísku að halda frammhjá og líka 4some eða bæta bara einum einstaklingi við grúbbuna, hvað skeði eiginlega? Ég er enn þeirra skoðunar að það er bara einn maður sem maður er með í einu, og þú virðir hann það mikið að þú gerir þeirri manneskju það ekki að halda frammhjá henni.

Svefnherbergið er bara fyrir 2, (kanski börnin líka)

 

                                                             jæja þetta voru bara mínar hugleiðingar 


Auka kílóin

Vá hvað ég HATA aukakíló og baráttuna við þau, þetta er svo erfitt og tekur svo langan tíma. Ég hef verið að berjast við þetta allt mitt líf og gengur ekkað hálf brösulega, er búin að prófa alla megrunarkúra sem til eru, farið í maga minkunn og allt. sko ég veit allveg hvað ég á að gera, hvað ég má borða og hvað ekki, kann þetta allt utanbókar en samt er bara einsog ég nái þessu engan veginn. Ég þyngist alltaf aftur sama hvað ég reyni að passa mig, að þá fer ég alltaf að slaka á inn á milli og gleyma mér, og vakna svo upp aftur þegar að ég átta mig á að fötin eru hætt að passa einaferðina enn. com on ég hef farið 3 í hveragerði á heilsu hælið þar í megrunarskyni og 1 sinni á Reykjalund áður en ég fór í fyrrnefnda aðgerð. Að aðgerð lokinni gekk allt einsog í sögu í um 1 ár ég var komin niður í tölu sem ég hafði ekki verið í áður, en að þessu ári loknu fór allt til fjandans aftur, tel að geðlæknirinn hafi átt stóran þátt í því, því hann lét mig á 4 listaukandi lyf (EINSOG 1 SÉ EKKI NÓG) og viti menn 30 kg komin til baka á no time, svo núna er ég enn og aftur að heyja mína baráttu við þetta, ég er að reyna að breyta lífstílnum, megranir duga ekki. taka út það óholla og reyna að troða einhverju grasi inn í staðin, kanski kanínufóður líka :)

Og hvað er málið með allar verslanir/sjoppur, Nammi allstaðar, Ég fer inn í verslun og er stolt þegar að ég kemst framm hja einum rekka til annars og svo verð ég svo stolt þegar ég er komin í röðina að kassanum, en það breytist því búðirnar þurfa allveg endilega að troða nammi við kassan, og þar fell ég alltaf. Ekki mikið verið að hugsa um okku feitabollurnar þar.

 

 


Lögreglan og dómar, hvað er að þessu drasli.

Veistu ég er búin að vera að velta svolitlu fyrir mér, Við konur sem verðum fyrir nauðgunum ( á líka við um karlmenn sem lenda fyrir því), fáum enga hjálp, þannig séð við erum látnar ganga í gengum ekkað ákveðið ferli og svo stoppar bara allt. Ég lenti síðast fyir þessu í ágúst 2006, og ég ætla aðs seigja ykkur frá ferli sem ég fór í gegnum. Eftir atvikið kem ég mér á sjúkrahúsið til rannsóknar og töku sönnunargagna, Það voru allir á sjúkrahusinu mjög góðir og hjúkkan sem sá um mig er yndisleg, en svo fæ ég að skjótast heim í sturtu áður en ég á að fara í skýrslu töku upp á lögreglustöð, er ég kem þangað tekur rannsókralögreglu kallinn á móti mér, ég fylgi honum inn í herbergi og skýrslan tekin, Hann var hræðilegur, talaði alltaf við mig eins og ég væri að ljúga eða að ég væri sökudólgurinn, Þetta var vitanlega hræðilega erfitt fyrir mig. En jæja ég fer svo bara heim og býð átekta, ekkert gerist og biðin var orðin heldur löng, en þá allt í einu var ég aftur kölluð í aðra yfirheyrslu (halda þeir að það sé ekkað auðvelt að segja frá þessu aftur og aftur?) ég fer svo bara heim. svo c.a 3 mánuðum seinna fæ ég bréf sent heim, sem sagði það að málinu hefði verið vísað frá vegna skorts á sönnunargögnum, það var mikið áfall fyrir mig og ég hreint skil þetta ekki því ef að mar á upphandleggjum sprunga/sár í leggöngunum og sæði úr honum eru ekki ekki nægar sannanir, hvað þarf þá?

Ég neitaði að gefast upp og vildii fá lögfræðinginn minn til að fá gjafasókn fyrir mig á þetta mál, og byrjaði að tala við hann í maí í fyrra með þetta og það var ekki fyr en í janúar núna að hann hafði tíma til að segja mér að hann þyrfti á skattarskýrslunni minna að halda, ég fer auðvitað og næ í hana fyrir hann, svo núna í mars berst mér bréf, og í því stendur að ég þurfi á finna mér annan lögfræðing, því hann hafi ekki tíma í þetta og einnig að þar sem ég færi búsett á Eigilstöðum að þá væri nær fyrir mig að fá mér lögfræðing þar, Hvaðan kom þetta hjá honum ég flutti frá Eigilstöðum í júlí lok árið 2004. þannig að frá því að hann hitti mig fyrst hef ég verið á Akureyri, ég varð verulega pirruð með þetta. En ég ætlaði ekki að gefast upp og fór á ónafngreinda lögmannstofu hérna á Ak til að kanna hvort þar myndi einhver vilja hjálpa mér, en svarið sem ég fékk þar var svo hljóðandi : við höfum ekki tíma fyrir svona rugl. Þannig að ég skil vel þær konur sem vilja ekki/geta ekki gengið í gegnum svona ferli, svo ég er búin að gefast upp. þannig að það eina sem ég fæ séð útúr öllu þessu er að það er leyfilegt að nauðga konum á Íslandi. Ég hata þetta, Örið sem þetta hefur skilið eftir sig (nauðgunin) er stórt og stækkaði við öll þessi áföll.

Þið konur/menn sem hafið orðið fyrir þessu eigið öll mína samúð skilið.

                                                   kv. sári einfarinn
 


Eingin fyrir sögn.

Vill einhver koma og rota mig, ég er svo þreytt en næ ekki að sofna, hausin á mér er á miljón um allt og ekkert og fullt af hlutum sem engin getur gert neitt að amk ekki ég. Þetta með gleraugun reddaðist í gær, en það virðist ekki hafa breytt neinu hausin á mér fór að hafa aðrar áhyggjur, sko núna í apríl, verður mamma 50 ára þann 19.arpríl og svo Þann 20.apríl ætlar stóra systir mín að gifta sig, og eru þær alltaf að minna mig á að ég hef ekki efni á að kaupa neitt handa þeim þennan mánuðinn, Ég held ég mun gera mig að fífli þegar að maður kemur í veislu og hefur ekkert að gefa, hvað á ég að gera? mig langar ekki að fara þarna í brúðkaupið og geta ekkert gefið og svo langar mig ekki að geta ekki gefið mömmu gjöf þar sem að hún er búin að reynast mér SVO vel í langan tíma. Hún er alltaf að gera ekkað fyrir mig og systir mín hefur hjálpað mér óendanlega mikið með stelpuna mína, Ég grét í alla nótt, ég er allveg að gefast upp. Ég reynd i gærikveldi að vera hressileg því ég fór að´hitta uppáhalds frænda  minn í gær,(hann átti afmæli) ég fór þó ég hafi verið búin að lofa sjálfri mér að vera heima. Þetta á eftir að vera langur og strangur dagur, ég ætla að reyna að taka eingar stórar ákvarðanir í dag þar sem að það er svo mikið myrkur hjá mér. þá geta ákvarðanir orðið einsog hugur manns, dökkar.                                                    kv. einfarinn

Lífið fyrir handann.

Ég fór til miðils í gær og var það afar áhugavert. og þótti mér mjög vænt um þessa stund sem ég átti þarna, mitt álit á þessum miðli er mjög gott tel hana afar hæfa. þar sem hún talaði um marga hluti sem hún gat engan vegin hafa vitað. En þó þetta hafi verið svona gott að þá er ég allveg búinn eftir þetta hausinn á fullu og ég næ engan vegin að sofa, svo margt að hugsa um ekki bara þetta þó, Því þetta eilífa peninga basl á mér er að fara með mig, akkurat núna vantar mig 30þús kall til að geta leyst út gleraugun fyrir stelpuna mína og mig og ég hef ekki hugmynd um hvernig ég á að fara að þessu, því ég er svo illa stödd að ég get ekki einu sinni fengið lánað (ekki það að ég vissi hvar heldur) því þetta er orðið að vítahring ég þarf alltaf að fá lánað í hverjum mánuði af því að í byrjun mánaðarins þarf ég að borga það sem ég fékk lánað í mánuðinum á undan. Þetta er svo að fara með mig að ég var að spá í að enda þetta líf (bara vantar kjarkinn). Ég er búin að láta þær í leikskólanu vita að hún muni vera komin með gleraugu næst þegar að hún mætir í leikskólann þannig ef  gerir það ekki verður pottétt ekkað sagt við mig. svo ég sjálf á eftir að keyra á einhvern á ferðalagi mínu því að í dag og gær hef ég þurft að píra augun því það er allt í móðu, svo það er kanski ekki sniðugt. Þannig að þegar að miðill-inn sagiði að ég yrði RÍK að þá langaði mig til að hlægja þvílík vitleysa ég rík jhe right like thats gona happen nei held ekki ég er svona baslara manneskja hef allavega alltaf verið það og hef enga trú á því að það muni breytast. Annað soldið skondið það kom í ljós að í fyrralífi (fyrir ykkur sem trúið á þetta) að þá var dóttir mín, mamma mín. sem er soldið skondið þar sem hún tók kafla í vetur þar sem hún var alltaf að segja mér frá því þegar að ég hafði verið í brjóstinu hennar (maginn.) og þegar að hun hafi verið að gefa mér að drekka og svo frammvegis, svo skildi hún ekkert í því að ég myndi ekki eftir þessu, Ég hafði bara gaman af þessu og taldi hana vera að bulla bara, en hver veit. Allavega sagði miðill-inn það að hún sæi mikið meira en við, svo það verður gaman að vita hvort það eldist af henni eða ekki. En hvað um það að þá ætla ég að halda áfram að vorkenna sjálfri mér ofboðslega MIKIÐ, það gerir það einginn annar og þarna er ég líka komin með dagskrá dagsinn Blush

 

 

 

Svo langar mig að Þakka þér amma fyrir að hafa komið til mín í gær, ég hef saknað þín ofboðslega mikið frá því þú yfirgafst þennan heim. það er mér mikill léttir að vita til þess að þér líður betur núna. elska þig.                                                        Þinn einfari. 


Hvernig er það, get ég bara ekki fengið að sofa?

Sko ég er orðin hundleið á því að vakna fyrir kl 05 á morgnanna, það er einginn vakandi á þessum tíma sem ég get blaðrað við, nema um helgar þá gæti einhver verið blindfull/ur vakandi og ég nenni ekki að röfla við drukkið fólk. En ef fólk heldur að mig langi að fara aftur í svefnlyfin að þá er það stór miskilningu frekar vil ég vaka, heldur en að fara í ruglið aftur.

Trú er ekkað sem fólki finnst ægilega gaman að þræta um og ergja sjálft sig á, mín skoðun er sú að það skiptir engu máli hvað trúin hetir, sko ég trúi, en það sem ég trúi á heitir ekkert sérstakt, bara það að það sem ég trúi á er algott og geti fyrirgefið allt, nafnið á trúnni breytir engu það má kalla það guð, alla eða hvað sem er breytir engu. Svo er komið nóg af þrætum um biblíuna, maður verður nú hálf pist á þessu öllu saman.

hvað sem öllu öðru líður að þá nenni ég ekki að skrifa meira. enda fólk örugglega orðið þreytt á blaðrinu í mér 


Svöng!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!1

Ég er fokking svöng, sko mér var sagt (hefur oft verið sagt) að byrja daginn á morgun mat því hann sé nauðsynlegur og ég er búin að vera að venja mig á það, svo núna þegar að ég er að fara í Ísótóparannsóknir (gallvegskann) og þarf að fasta að þá er ekki sniðugt að hafa vanið sig á morgun matinn því nú er ég Ógeðslegasvöng, og mér finnst það ekki gaman og þeim sem eru nálægt mér finnst það heldur ekki skemtileg þar sem að ég verð ofboðslega pirruð ef ég er svöng. Manneskja einsog ég sem er yfir 3ja stafa tölunni finnst ekki gaman að vera svöng, ekki það að ég meigi ekki við því að missa c.a 30 kg, en málið var að ég er að reyna að létta mig (skiljanlega) vegna þess að það virðist há öðrum allveg rosalega hvað ég er þung. en sökum þess að ég er að megra mig að þá byrjaði ég á þessu morgunverðar kjaftæði. garggggggggg ég er pirruð. en það góða við þetta allt saman er að ég er bara að fasta núna í nokkra kl þetta mun ekki vera svona á hvejum deigi. þó ég sé tilraunardýr hjá SA (Sjúkrahús Akureyrar). En talandi um að létta sig, ég fór og keipti mér rándýrar brennslutöflur um mánaðar mótin sem átti að hjálpa mér rosa mkið, svo las ég á þesssar dýrindis brennslur töflur og komst að því að þær virka vel ef þú geir eftirfarandi: Ferð út að labba í ræktina, borðar réttan mat og sleppir öllum sætindu , gott er einnig að drekka vel af vatni.. haha sko ef ég geri allt þetta að þá þarf ég ekkert á þessum yndislegu brennslu töflum að halda. Sko þar sem að ég hef alltaf verið of þung manneskja að þá veit ég allveg hvað ég þarf að gera og hvað ég eigi að gera og hvað ekki, Ég hef prófað alla heimsins megrunarkúra sem til eru og virkar þeir misjafnlega vel, en það er pottþétt að þú færð allt á þig til baka og meira en það þegar að þú hættir á megrunarkúrnum, einnig er ég búin að að fara í bypass (magaminkun) og tókst að klúðra henni reyndar með hjálp frá Geðlækninum mínum (fyrrverandi). Það sem til þarf er breytur lífstíll ekkert annað virkar, svo ég er að reyna að breyta lífstílnum, hætt að drekka coke, ég hélt að þar sem ég hætti að drekka coke að þá myndi ég nú léttast vel þar sem að ég drekk nú nánast bara vatn. en hef ekki lést um gramm. og þetta fer líka í pirrurnar á mér. en það  þíðir nú ekki að blaðra um það

 

 

                                          bæ pirraði einfarinn 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sigríður Svala Hjaltadóttir

Höfundur

Sigríður Svala Hjaltadóttir
Sigríður Svala Hjaltadóttir
Ung kona á uppleið.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • kata systir
  • DSC07740
  • DSC07738
  • DSC07735
  • DSC07733

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband